Af flugi!

Við Íslendingar búum í stóru og dreifbýlu landi með fáum og því ljóst að góðar samgöngur eru grundvöllur fyrir búsetugæði. Það er því ekki að undra að málefni innanlandsflugs og kostnaðar vegna þess brenni á íbúum landsbyggðanna.

Greiðar og aðgengilegar samgöngur skipta lykilmáli bæði fyrir íbúa og atvinnurekendur á svæðunum utan höfuðborgarsvæðisins, þar sem flytja þarf vörur og þjónustu á milli landshluta. Þetta er þannig ekki síður mikilvægt þegar kemur að samkeppni um gott starfsfólk sem oft veigrar sér að flytja á landsbyggðirnar vegna þess hve dýrt er að ferðast á milli landshluta.

Greiðar flugsamgöngur ráða því oft miklu um það hvort fólk festir rætur á nýjum stað eða ekki, en þar spilar einnig inn í aðgengi að heilbrigðisþjónustu, afþreyingu og verslun. Það er því ljóst að mikilvægt er að horfa til leiða sem stuðla að verðlækkun í innanlandsflugi.

Við í Samfylkingunni styðjum það að innanlandsflug verði skilgreint sem almenningssamgöngur og að skoska leiðin svokallaða komi til framkvæmda á Íslandi, en hún felur í sér að íbúar í dreifðum byggðum fái niðurgreidd flugfargjöld.

Við teljum að með því eflist samfélögin á landsbyggðunum enn frekar og jöfnuður um aðgengi að höfuðborginni náist. Þar er auðvitað lykilatriði að flugvöllurinn verði áfram í Vatnsmýrinni svo lengi sem enginn annar jafn góður eða betri kostur verði í boði.

Höfundar eru í öðru og þriðja sæti á lista Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi


Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.