Orkumálinn 2024

Magni Ásgeirs: Komið í æfingu að breyta gamalli síldarbræðslu í tónleikahús

Allt er óðum að verða tilbúið fyrir tónlistarhátíðina Bræðsluna sem fram fer á Borgarfirði um helgina og segir Magni Ásgeirsson, bræðslustjóri, góðan og samhentan hóp koma að uppsetningu hátíðarinnar.

Bræðslan verður haldin í tólfta skiptið nú um helgina og segir Magni það vera komið uppí góða æfingu að breyta gömlu síldarbræðslunni í tónleikahús. „Við þurfum alltaf að gera það sama á hverju ári en þetta tekur orðið enga stund, við vorum alveg tvo heila daga að þessu hérna fyrst,“ segir Magni og heldur áfram, „þetta er líka orðið svo rosalega snyrtilegt í seinni tíð, við þurftum bara að færa út fjóra báta núna og byggja sviðið auðvitað.“

Sviðið er árlega byggt upp í miðri bræðslunni, aðallega úr fiskikörum og pallettum. „Við settum upp sviðið á mánudaginn, erum með góðan hóp vaskra drengja á óræðum þrítugsaldri í því. Þeir fá svo jafnvel miða á Bræðslu að launum ef þeir standa sig vel. Það er komin góð hefð á þetta allt saman,“ segir Magni. „Við erum líka búin að vera svo mikið með sama fólkið í þessu frá upphafi, sömu hljóðmenn og ljósamenn og svona, þannig að við erum orðin eins og fjölskylda, Bræðslu fjölskyldan.“

Magni segir stemminguna í firðinum góða. „Það er löngu uppselt á Bræðslu og mér skilst að það sé líka að verða uppselt á tónleika í Fjarðarborg. Veðrið er búið að vera frábært síðustu daga og á náttúrulega bara eftir að batna. Það er einhver ró hérna yfir öllu finnst mér og ótrúlega lítið stress.“ Segir Magni að lokum.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.