Nýtt Útsvarslið Fljótsdalshéraðs: Við erum öll brjálæðislegir keppnismenn

fljotsdalsherad utsvar urslit12 0007 webFljótsdalshérað mætir Ölfusi í Útsvari, spurningakeppni sveitarfélaga, annað kvöld. Glænýtt lið mætir til leiks að austan.

Þorsteinn Bergsson, bóndi á Unaósi, snýr aftur eftir tveggja ára hlé en með honum verða Eyjólfur Þorkelsson, læknir og Björg Björnsdóttir, verkefnastjóri sveitarstjórnarmála hjá Austurbrú.

„Við tökum verkefnið mjög alvarlega því okkur er sýndur mikill heiður með að vera valin í þetta lið," segir Björg sem hefur mikla trú á liðsfélögum sínum.

„Ég er persónulega ákaflega glöð yfir að hafa Steina því hann veit allt og við erum ótrúlega heppin að Eyjólfur læknir er frábær leikari," segir hún.

Stefnan er vitaskuld sett á sigur. „Það þýðir ekkert annað. Við erum öll brjálæðislegir keppnismenn. Samstarfsfólk mitt hjá Austurbrú getur borið vitni um að ég er enn sár yfir keppni sem var í september í fyrra. Stefán Pálsson á því ekki von á góðu ef við vinnum ekki."
 

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.