Orkumálinn 2024

Nýtt myndband Kaleo að miklu leyti tekið upp á Héraði

jea 2014 0009 webNýtt tónlistarmyndband hljómsveitarinnar Kaleo úr Mosfellsbæ er að miklu leyti tekið upp á Fljótsdalshéraði. Það var frumsýnt fyrir helgi.

Lagið „All the Pretty Girls" hefur fengið nokkuð góða spilun í sumar og myndbandið endurspeglar sumarandann í laginu.

Stór hluti myndbandsins er tekinn upp á Fljótsdalshéraði og skartar að hluta til leikurum af svæðinu sem sjást syngjandi við varðeld og svamlandi í Lagarfljótinu.

Hljómsveitin er við Mosfellsbæ en trymbill hennar, Davíð Antonsson Crivello, er að hluta til alinn upp á Egilsstöðum. Sveitin kom austur í júní og spilaði þá á Jazzhátíð.



Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.