Ferðalög: Umgengni ferðamanna í fjallaskálum fer versnandi

faskrudsfjardarlina 07032014 webUmgengni ferðamanna í fjallaskálum hefur farið versnandi undanfarin misseri. Stöðugt færist í vöxt að dyrum og gluggum sé ekki lokað þegar hópar yfirgefa skála og hefur það leitt til stórskemmda þegar snjóar inn. Almennri umgengni og hreinlæti ferðamanna í fjallaskálum fer einnig aftur. Að ýmsu er að huga fyrir ferðalög um páska.

Þetta kemur fram í tilkynningu sem ellefu ferðafélög sendu nýverið frá sér, þar á meðal Austurlandsdeild 4x4 klúbbsins og Ferðafélag Fljótsdalshéraðs.

Góður ferðamaður leggur metnað sinn í að skilja við húsnæði hreint, gólf þvegin sem og borð og bekki. Hann skilur ekki eftir sorp eða óuppþvegin matarílát og afganga. Áfengisneysla í fjallaskálum fer stundum úr böndum en ætti ekki að þekkjast á fjöllum eða að vera tilgangur fjallaferða. Í einstaka tilvikum hefur það leitt til þess að ferðamenn ganga jafnvel örna sinna innandyra í anddyri fjallaskála eða í nágrenni þeirra.

Dæmi eru um að hluta af búnaði eða innréttingum og lausamunum hafi verið stolið úr fjallaskálum og hafa t.d. horfið kamínur úr tveimur skálum nálægt Langjökli síðustu vetur. Varla þarf að taka fram að hegðun örfárra setur auðveldlega blett á stóran hóp ferðamanna sem flestir fara til fjalla til að njóta lífsins og þeirrar fegurðar sem íslensk náttúra býr yfir.

Þau félög sem skrifa undir þessa yfirlýsingu vilja höfða til allra ferðamanna um að taka höndum saman og bæta umgengni og ferðahegðun. Við viljum biðja þá sem verða vitni að slæmri hegðun og sóðaskap eða lögbrotum og hættulegu athæfi á borð við akstur undir áhrifum áfengis að reyna eftir megni að veita ferðamönnum aðhald með ábendingum og vísa afbrotum til lögreglu. Myndir og skráning númera ökutækja geta veitt aðhald á sama hátt og þögn og afskiptaleysi ýtir undir slæma hegðun og heimilar hana óbeint.

Enginn ferðamaður vill láta einstaklinga án dómgreindar varpa skugga á allan hópinn. Umgengni sýnir innri mann og framferði manna þegar þeir halda að engin vitni séu til staðar og öll siðmenning víðsfjarri talar sínu máli um innræti þeirra. Tökum höndum saman og bætum ástandið, segir í tilkynningunni.

Margir hyggja á ferðalög um páska og þá er að ýmsu í huga. Vegagerðin bendir á að þegar frost sé að fara úr jörðu þurfi víða að banna allan akstur á á hálendinu til að koma í veg fyrir skemmdir á vegum og náttúru. Þeir sem hyggja á fjallaferðir eru beðnir að kynna sér ástand á viðkomandi leiðum og virða akstursbann þar sem það er í gildi.

Umferðarþjónusta Vegagerðarinnar veitir nánari upplýsingar í síma 1777 og eins má hér vef Vegagerðarinnar hvar akstur er bannaðar.

Þá varar Landsnet enn við því að hættulega stutt sé upp í háspennulínur, meðal annars á Austfjörðum. Þá sendi fyrirtækið frá sér sérstaka viðvörun í gær vegna notkunar skíðadreka til að draga skíða- og brettafólk yfir snævi þakta jörð í nágrenni við línurnar.

Mælt er með því að nota drekana ekki í minna en 100 metra fjarlægð frá línunum. „Hvers konar snerting eða tenging við háspennulínu getur verið lífshættuleg og jafnvel orðið mönnum að aldurtila."

Mynd: Landsnet

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.