Björgunarsveitir að norðan á leið austur
Hátt í 20 björgunarsveitarmenn frá Eyjafirði og Skagafirði undirbúa sig undir að fara norður á Seyðisfjörð til aðstoðar við tiltekt og fleira eftir skriðuföllin þar fyrir jól.Þórunn aftur í lyfjameðferð vegna krabbameins
Þórunn Egilsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins frá Vopnafirði, er komin í lyfjameðferð vegna brjóstakrabbameins. Hún hefur dvalist á Sjúkrahúsinu á Akureyri yfir jólin.„Skriðan verður aftur græn“
Ómar Bogason, íbúi á Seyðisfirði, segist ætla að halda jólin í þakklæti yfir því að ekki hafi farið verr þegar miklar skriður féllu á bæinn í síðustu viku. Hann vonast til að lærdómur verði dreginn af skriðunum sem síðar bjargi mannslífum.Skemmtilegar og vel skrifaðar jólasögur
Úrslit liggja fyrir í jólasmásagnakeppni Menningarstofu Fjarðabyggðar. Dómnefndin var samstíga í mati sínu og sammála um að sögurnar sem skilað var inn væru gríðarlega skemmtilegar og vel skrifaðar, að því er segir á vefsíðu Fjarðabyggðar.Engin hreyfing að ráði mælst yfir jólin
Vonast er til að hægt verði að aflétta rýmingum á Seyðisfirði að einhverju leyti í dag. Veðrið um jólin var kjörið til að kanna stöðugleika í hlíðunum ofan bæjarins í sunnanverðum firðingum. Engin teljandi hreyfing hefur verið á því síðustu daga.Ekki útlit fyrir hreinsun á Seyðisfirði vegna veðurs í dag
Ekki er neitt útlit fyrir að byrjað verði að hreinsa til eftir aurflóðin sem féllu á Seyðisfirði fyrir jól í dag. Ófært er yfir Fjarðarheiði og hæpið að koma nauðsynlegum mannskap eða tækjum á staðinn.Seyðfirðingum sendur heimagerður jólaís
Um sextíu manns tóku jákvætt í umleitan Katrínar Reynisdóttur, fyrrverandi íbúa á Seyðisfirði, þegar hún óskaði eftir fólki sem tilbúið væri að gera ís fyrir jólin til að senda Seyðfirðingum. Ísnum var safnað saman og útdeilt þar um hádegisbilið í dag.Reikna með 170 skömmtum austur
Vonast er til að hægt verði að bólusetja um 170 Austfirðinga við Covid-19 veirunni fyrir áramót. Von er á bóluefni austur í vikunni.Bjartsýnn á að Tækniminjasafnið opni á ný
Tvær byggingar Tækniminjasafns Austurlands eru ónýtar og tvær aðrar mikið skemmdar eftir að stóru aurskriðuna sem féll á utanverðan Seyðisfjörð fyrir tíu dögum. Peningaskápur með ómetanlegum ljósmyndum frá Seyðisfirði fannst óskemmdur á Þorláksmessu.Gul veðurviðvörun á Austurlandi og Austfjörðum á morgun
Veðurstofan hefur gefið út gula veðurviðvörun fyrir Austurland að Glettingi og Austfirði á morgun. Viðvörunin hefst á miðnætti í kvöld og stendur í sólarhring. Búist er við norðanstormi og töluverðri úrkomu á Seyðisfirði og Eskifirði.