Námsefnið hugsað fyrir yngstu kynslóðina

Minjasafn Austurlands hefur undanfarna mánuði unnið að gerð nýs námsefnis fyrir grunnskóla og er það hugsað sem stuðningur við skólaheimsóknir á safnið.


Minjasafnið hlaut styrk úr Safnasjóði árið 2015 til að efla safnfræðslu sína en í því fólst meðal annars að láta vinna námsefni fyrir safnið. Efnið er hugsað sem stuðningur við heimsóknir á safnið og verkefnin er bæði hægt að vinna á safninu sjálfu eða heima í skólastofunni. Einnig er lagt upp með að þeir kennarar sem ekki eiga þess kost að koma með nemendur sína á safnið geti nýtt efnið við kennslu. Efnið er unnið í samstarfi við Unni Maríu Sólmundsdóttur, kennara og námsefnishöfund sem á og rekur gagnabankann Kennarinn.is.

Elsa Guðný Björgvinsdóttir, safnstjóri Minjasafns Austurlands, segist viss um að námsefnið styrki safnfræðslu Minjasafnsins.

„Eitt af mörgum hlutverkum safna er að fræða og miðla menningararfinum. Námsefnið er hugsað til að koma betur til móts við einn mikilvægasta markhóp safna, þ.e. yngstu kynslóðina. Við vonumst til að kennarar sjái sér hag í að nýta efnið og að með þessu muni nemendur alast upp sem virkir neytendur þess sem í boði er á söfnum,“ segir Elsa Guðný.

Mismunandi umfjöllunarefni fyrir hvern árgang
Elsa Guðný segir að hver og einn námsefnispakki sé eyrnamerktur hverjum bekk grunnskólans.

„Mismunandi umfjöllunarefni eru fyrir hvern árgang en öll tengjast þau á einhvern hátt sýningum og safnkosti Minjasafnsins eða sögu Austurlands. Pakkarnir eru sniðnir að þörfum hvers aldurshóps en þó þeir séu séu merktir ákveðnum bekkjum er ekkert því til fyrirstöðu að kennarar noti efnið í öðrum árgöngum.

Nú eru þrír námsefnispakkar tilbúnir. Þar er um að ræða pakka um þorrann sem ætlaður er 1. bekk, efni sem tengist sýningunni Hreindýrin á Austurlandi sem ætlaður er 3. bekk og efni um Sigfús Sigfússon þjóðsagnasafnara frá Eyvindará sem merktur er 4. bekk. Fleiri pakkar eru í vinnslu og munu þeir allir verða aðgengilegir á sama stað þegar fram líða stundir."

Nánari upplýsingar um efnið er að finna hér.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.