Hússtjórnarskólinn friðlýstur

Forsætisráðherra hefur friðlýst Handverks- og hússtjórnarskólann á Hallormsstað að fenginni tillögu Minjastofnunar Íslands.


Friðlýsingin nær til ytra borðs skólahússins ásamt ásamt upprunalegum innréttingum í vefstofu, skrifstofu skólastjóra, anddyri og svokallaðri Höll, sem er samkomustaður í miðju hússins. Undanþegnar friðlýsingu eru seinni tíma viðbyggingar og múrklæðning á útveggjum.

Skólahúsið er byggt á árunum 1929-30 eftir uppdráttum Jóhanns Franklíns Kristjánssonar. Yfirsmiður byggingarinnar var Guðjón Jónsson trésmiður á Reyðarfirði.

Innréttingar hússins eru merkar og mjög vel varðveittar með upprunalegum húsgögnum, sem eru að hluta til veggföst, hönnuðum af Gusthel Weinem, sem var ein af fyrstu kennslukonum skólans. Trésmíðavinnustofa Benedikts Sveinssonar á Fáskrúðsfirði sá um smíðina.

Frá upphafi hefur húsgagnaáklæðið verið með sama mynstri þó nemendur skólans hafi ofið nýtt áklæði.

Í húsinu er eini starfandi skólinn sem staðist hefur tímans tönn af þeim húsmæðraskólum sem reistir voru á landsbyggðinni.

Bæjarráð Fljótsdalshérað fagnaði friðlýsingunni á fundi sínum um gær þar sem um sé að ræða merkilega byggingu sem eigi orðið langa sögu í skólahaldi á Héraði.

Um leið friðlýsti forsætisráðherra sumarhúsið Ísólfsskála á Stokkseyri sem byggt var fyrir Pál Ísólfsson, dómorganista.

 

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.