Orkumálinn 2024

Fortitude: „Svolítið eins og að koma á sitt annað heimili“

taergesenReyðarfjörður er að taka á sig mynd Fortitude á nýjan leik, smábæjarins á Svalbarða þar sem ógnvænlegir atburðir eiga sér stað.
Upptökur af annarri þáttaröðinni hefjast í febrúar, en líkt og áður er það helst miðbærinn sem breytir um svip – búið er að byggja utan á Tærgesen-húsið, sem og að breyta verslun N1 í „Snow & Ice" sem virðist selja allt það helsta sem þarf til að komast af á norðurhjara veraldar.

Pétur Sigurðsson, framleiðslustjóri þáttanna, hefur verið á Reyðarfirði að undanförnu, ásamt 20 manna hópi frá Bretlandi, til þess að leggja lokahönd á að velja nýja tökustaði.

„Það borgar sig að vera í tíma með þetta, sem og að leikmyndadeildin er farin að vinna á fullu, en leikmyndin er ekki sett upp á einni nóttu. Tökur fara fram í febrúar og svo aftur frá marslokum og út apríl," segir Pétur.

Aðspurður hvort það sé ekki annað að standa að undirbúningi núna en síðast segir hann: „Jú vissulega er auðveldara þegar maður þekkir til, þetta er svolítið eins og að koma á sitt annað heimili."


Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.