Orkumálinn 2024

Samkeppniseftirlitið búið að vera í tvö ár að skoða tengsl Síldarvinnslunnar við eigendur

neskSamkeppniseftirlitið er enn að skoða tengsl Síldarvinnslunnar við aðaleigendur sína, Gjögur og Samherja. Hún hefur staðið í rúm tvö ár.

„Staða athugunar Samkeppniseftirlitsins á því máli er sú að það er enn í skoðun en lyktir málsins hafa dregist vegna anna," segir í svari eftirlitsins við fyrirspurn Austurfréttar.

Eftirlitið tilkynnti í apríl 2013 að það hefði hefði hafið athugun á hvort fyrirtækin þrjú hefðu brotið gegn banni samkeppnislaga um samkeppnishamlandi samvinnu keppinauta.

Upphaflega var kaupum Síldarvinnslunnar á Berg-Huginn í Vestmannaeyjum síðsumars 2012, sem nýverið voru staðfest í Hæstarétti, skotið til eftirlitsins.

Það komst að þeirri niðurstöðu að ekkert væri óeðlilegt við þau en rannsóknin hefði hins vegar leitt í ljós mikla samvinnu milli Síldarvinnslu og aðaleigendanna tveggja í útgerð, fiskvinnslu og sölu afurða.

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.