Orkumálinn 2024

Unnar Geir nýr forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Fljótsdalshéraðs

unnar geir unnarsson studioUnnar Geir Unnarsson, leikari, hefur verið ráðinn forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Fljótsdalshéraðs. Þrettán sóttu um stöðuna en sex drógu umsókn sína til baka.

Unnar Geir stundaði tónlistarnám við Tónlistarskóla FÍH og lauk burtfararprófi í klassískum söng frá Tónlistarskóla Kópavogs árið 2005.

Hann útskrifaðist sem leikari árið 2010 frá The Kogan Academy of Dramatic arts í London og árið 2011 sem leikstjóri frá sama skóla. Hann útskrifaðist einnig með réttindi til að kenna S.of.A kenninguna sem námið byggðist á.

Unnar lýkur námi í menningarstjórnun (MA gráðu) við Háskólann á Bifröst á þessu ári.

Unnar hefur starfað sem sviðsmaður, leikstýrt og unnið með áhugaleikfélögum, m.a. vann hann að uppsetningu leikverks með Leikfélagi Menntaskólans á Egilsstöðum í vetur. Hann hefur einnig starfað sem sýningarstjóri og verið sjálfstætt starfandi sviðslistamaður.

Unnar mun hefja störf hjá miðstöðinni um næstu mánaðamót.

Aðrir umsækjendur um starfið voru: Helga Þórsdóttir, Særós R. Björnsdóttir, Ragnar Jónsson, Arnaldur Máni Finnsson, Dagný Berglind Gísladóttir og Elfar Logi Hannesson.

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.