Orkumálinn 2024

Atkvæðagreiðsla um verkfallsboðun hjá undirverktökum Alcoa

aflAFL Starfsgreinafélag hefur ákveðið að efna til atkvæðagreiðslu um boðun vinnustöðvunar hjá fyrirtækjum sem starfa sem undirverktakar hjá Alcoa Fjarðaáli við framleiðslu, viðhald og þjónustu. Verkfallsboðunin tekur til starfa verkamanna, iðnaðarmanna og verslunarmanna.

Kjörfundur vegna atkvæðagreiðslunnar verður að Búðareyri 1 og opnar kl. 12:00 í dag og lýkur kl. 16:00 á miðvikudag. Kjörstað verður lokað að loknum kynningarfundum og opna aftur kl. 09:00 þriðjudag og miðvikudag.

Verkfallið tekur til alls um 400 manns sem starfa hjá 8 fyrirtækjum. Starfsmenn undirverktaka vinna við framleiðslu, viðhald og ýmis konar þjónustu innan svæðis.

AFL hefur haft uppi kröfu um lóðarsamning allt frá því að verksmiðjan tók til starfa og hefur gert kröfu á SA um kjarasamning vegna þessara starfa 2011 og 2013. Að þessu sinni hafa verið haldnir 5 sáttafundir en án árangurs.

Deilunni var vísað til sáttasemjara fyrr í mánuðinum en síðastliðinn þriðjudag lýsti AFL viðræðurnar árangurslausar og á miðvikudag sleit félagið viðræðum.

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.