Orkumálinn 2024

40 ár liðin frá snjóflóðunum í Neskaupstað

40 ar neskaupstadurKyrrðarstund verður í Norðarðarkirkju, laugardaginn 20. desember nk. kl. 15:00, í minningu þess að þá eru 40 ár liðin frá því að snjó óðin féllu í Neskaupstað.

Kyrrðarstundina leiðir sr. Sigurður Rúnar Ragnarsson. Um tónlistarflutning sjáÞórður Sigurðarson, organisti, kór Norð arðarkirkju og Tónskóli Neskaupstaðar.

Þá flytja Jón Hilmar Kárason, Þorlákur Ægir Ágústsson og Guðmundur Gíslason lag Guðmundar Solheim, sem tileinkað er minningu þeirra sem fórust í snjóflóðunum.

Að kyrrðarstund lokinni verður opið hús í Egilsbúð í boði Fjarðabyggðar. Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar, flytur ávarp kl. 16:00 og Flóðið, sýning Jóns Hilmars Kárasonar og Jóns Knúts Ásmundssonar frá árinu 2010, verður endursýnd að hluta.

Þá verða einnig til sýnis uppdrættir af minningarreit, sem opnaður verður almenningi á næsta ári í minningu þeirra sem farist hafa í snjó¬óðum á Norð rði, ásamt frumgerð úr minnisvarða minningarreitsins.

Sjá auglýsingu


Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.