Stuðlað að byggðaröskun með að beina öllu flugi í gegnum Keflavík?

flug flugfelagislands egsflugvLandshlutasamtök, atvinnuþróunarfélög og markaðsstöðum á Norður- og Austurlandi og á Vestfjörðum hafa tekið höndum saman um að berjast fyrir annarri gátt fyrir komu ferðamanna til Íslands.

Þetta kemur fram í sameiginlegri ályktun sem tíu félög, þar á meðal Austurbrú og Samband sveitarfélaga á Austurlandi, sendu frá sér fyrir helgi.

Þar segir að flestir séu sammála um að fjölgun ferðamanna og álag á ferðmannastaði á sunnanverðu landinu sem og á Keflavíkurflugvöll hafi náð þolmörkum

Fyrirhuguð uppbygging á Keflavíkurflugvelli fyrir 15 milljarða króna er gagnrýnd. Samtökin telja það skjóta sökku við að byggja þar upp einu millilandagátt landsins þegar litið er til þróunarinnar, vaxandi krafna frá erlendum ferðaþjónustuaðilum um valkosti í ferðum til Íslands og yfirlýsinga um að dreifa auknum ferðamannastraumi um landið.

Því er farið fram á uppbyggingu flugvalla á landsbyggðinni.

„Stjórnvöld verða að búa varaflugvelli Keflavíkur á Akureyri og Egilsstöðum þannig úr garði að þeir uppfylli kröfur um þjónustustig vegna aukinnar umferðar, auk þess sem öryggi sjúklinga á stórum svæðum er stefnt í uppnám vegna skorts á viðhaldi flugvallarmannvirkja, eins og nýlegt dæmi frá Alexandersflugvelli sannar.

Brýnt er að ríkið (Isavia) tryggi nauðsynlegt fjármagn til þessara framkvæmda og móti sér framtíðarstefnu um millilandaflugvelli. Þeir aðilar sem að þessari ályktun standa eru tilbúnir að taka þátt í þeirri nauðsynlegu stefnumörkun sem þarf að eiga sér stað í íslenskri ferðaþjónustu, ekki síst hvað varðar aðrar fluggáttir inn í landið.

Leiða má að því líkum að með því að hafa Keflavíkurflugvöll í forgrunni sem gátt fyrir millilandaflug séu stjórnvöld að stuðla að byggðaröskun. Þannig er flutningur starfa af landsbyggðinni, m.a. í fiskvinnslu, bein afleiðing þessa en birtist jafnframt í lakri nýtingu fjárfestingu í atvinnuuppbyggingu um land allt umfram 100 km akstursvegalengdar frá höfuðborgarsvæði.

Stjórnvöld stýra því hvernig þessi uppbygging á sér stað. Stjórnvöldum er í lófa lagið að beina aukinni ásókn erlendra flugrekenda í aðrar áttir en til Keflavíkur og þannig auðvelda dreifingu ferðamanna um landið. Á sama tíma myndu þau stuðla að bættum samgöngum við umheiminn frá landinu öllu."

Samtökin skora því á stjórnvöld að breyta um stefnu í millilandaflugi og opna „þegar í stað aðra gátt inn í landið."

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.