„Rugl að gera" á dekkjaverkstæðum: Gætum verið tvöfalt fleiri að vinna

kristdor dekkjahollin okt14Biðraðir höfðu myndast á austfirskum dekkjaverkstæðum þegar starfsmenn komu þar til vinnu í morgun. Atgangur hefur verið þar í dag enda snjó kyngt niður í fjórðungnum.

„Það var komið fullt af bílum og biðröð hér fyrir utan þegar við opnuðum upp úr klukkan hálf átta í morgun. Fólk vissi af veðurspánni," segir Kristdór Þór Gunnarsson, rekstrarstjóri Dekkjahallarinnar á Egilsstöðum.

„Sumarið var gott og haustið líka þannig menn virðast hafa haldið í vonina um að það yrði sumar í allan vetur."

Á föstudag var byrjað að vara við veðri vikunnar og þær viðvaranir endurómuðu um helgina. „Það er búin að vera lítil hálka á vegum en svo kemur þetta allt í einu núna. Snjórinn kemur hart á okkur á fyrsta degi.

Það er mikil ófærð innanbæjar. Þeir sem eru á slæmum dekkjum komast ekkert um."

Mesta úrkoma á landinu á þessum sólarhring hefur mælst á Austfjörðum. Stórar snjóflygsur falla úr loftinu og snjóþekja er á flestum vegum. Öxi og Hellisheiði eru ófærar og þæfingur á Breiðdalsheiði.

Austfirðingar fara þó ekki verst út úr veðrinu en Kristdór segir sömu stöðu hafa verið í morgun á starfsstöðvum Dekkjahallarinnar um allt land.

Á Egilsstöðum eru tíu starfsmenn að störfum í dag en Kristdór segir „nóg af bílum fyrir 20. Við erum með 4-5 bíla inni í einu og þeir ganga hratt."

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.