Ungi maðurinn kominn úr lífshættu

logreglanKarlmaður um tvítugt sem slasaðist alvarlega í bílslysi á Fagradal í morgun er kominn úr lífshættu. Þá slösuðust fjórir í öðru bílslysi á Háreksstaðaleið eftir hádegið en enginn alvarlega.

Lögreglunni á Egilsstöðum var tilkynnt um bílslys á Fagradal klukkan 6:40 í morgun. Tæplega tvítugur karlmaður var þar á leið uppeftir til vinnu þegar bíll hans fór út af veginum.

Hann var fluttur með sjúkrabíl til Egilsstaða og þaðan flogið á Landsspítalann. Honum var haldið sofandi í fyrstu þar sem óttast var að hann væri í lífshættu en sú hætta er liðin hjá.

Hann hlaut höfuðáverka og alvarleg meiðsli. Tildrög slyssins eru óljós en málið er í rannsókn.

Klukkan 13:20 fór annar bíll út af veginum yfir Háreksstaðaleið og valt. Þar var á ferð móðir með tvær uppkomnar dætur sínar og tengdason á austurleið.

Þau slösuðust öll en ekki alvarlega og voru flutt í Egilsstaði til skoðunar. Talið er að ökumaðurinn hafi sofnað undir stýri.

Helgin hjá lögreglunni í umdæmi sýslumannsins á Seyðisfirði var annars róleg miðað við fjölda gesta en Bræðslan var á Borgarfirði og smiðjuhátíð á Seyðisfirði.

Lögreglan leitar þó eftir vitnum sem kunna að hafa orðið vör við slagsmál á tjaldstæðinu á Borgarfirði á áttunda tímanum á sunnudagsmorgun. Hún var kölluð til vegna líkamsárásar en ekki hefur verið lögð fram kæra í málinu. Þeim sem geta veitt upplýsingar um málið eru beðnir um að hafa samband við lögregluna á Egilsstöðum.

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.