Fjarðabyggð leitar að öflugum aðila í starf framkvæmdastjóra Fjarðabyggðarhafna. Framkvæmdastjórinn hefur yfirumsjón með stjórnun rekstri Fjarðabyggðarhafna. Næsti yfirmaður er bæjarstjóri.
Starfssvið
- Ábyrgð á stjórnun og rekstri Fjarðabyggðarhafna.
- Áætlanir, samningagerð og eftirlit með framkvæmdum og viðhaldi hafna.
- Gæða og öryggismál.
- Áætlanagerð og eftirfylgni.
- Stefnumótun og samningagerð.
- Undirbúningur og eftirfylgni funda.
- Samskipti við samstarfsaðila, ráðuneyti, opinberar stofnanir og hagsmunaaðila.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólapróf sem nýtist í starfi.
- Reynsla af stjórnun og rekstri.
- Þekking á stefnumótandi áætlanagerð og gerð rekstrar- og fárhagsáætlana.
- Þekking og/eða reynsla af gæða- og öryggismálum er kostur.
- Reynsla af verklegum framkvæmdum hafna er kostur.
- Þekking og reynsla af samningagerð er kostur.
- Þekking og reynsla af starfsumhverf opinberrar stjórnsýslu og/eða hafnarmála er kostur.
- Forystu-, skipulags- og samskiptahæfleikar.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.
Nánari starfslýsingu má lesa hér: Starfslýsing - framkvæmdastjóri Fjarðabyggðarhafna
Launakjör taka mið af launakerfi sviðsstjóra hjá sveitarfélaginu.
Ath. lengdur umsóknarfrestur: Til og með 23. október nk.
Konur jafnt sem karlar eru hvattar til þess að sækja um stöðuna.